Föstudaginn 22. maí fór 1.– 4. bekkkur í heimskókn í fjárhúsið í Eystra-Geldingaholti en þar var sauðburður á fullu. Farið var gangandi og tók gangan um 20 mínútur hvora leið. Nemendum var skipt í hópa þegar á áfangastað kom, einn hópur í einu fylgdist með kindunum á meðan aðrir busluðu í læknum við fjárhúsið. Boðið var upp á ávexti og kex úti í náttúrunni og þeir sem vildu gátu fengið ískalt vatn að drekka úr fjárhúskrananum. Mörg lömb voru nýfædd en því miður fæddust engin meðan á heimskókninni stóð. Nemendur fengu að halda á lömbum og skoða það sem þeir vildu í fjárhúsinu og vöktu stóru hrútarnir mikla athygli. Allir virtust ánægðir í lok ferðar og mátti ekki á milli sjá hvort skemmtilegra var í fjárhúsinu eða að leika sér í læknum.