Dagur íslenskrar tungu
Föstudaginn 15. nóvember var Þjórsárskóli með hátíðardagskrá í tilefni af Degi íslenskrar tungu. Skemmtunin hófst klukkan 20 í Árnesi.
1.-2. bekkur sá um afmælissöng skólans
3.-4. bekkur fjallaði um sögu Ásaskóla
5.-7. bekkur fjallaði um sögu Brautarholtsskóla
Yngri og eldri kór skólans söng kvæði og lög og sýndur var afrakstur haustsins í danskennslu. Nemendur voru vel undirbúnir og allir lögðu sitt af mörkum. Nemendur stóðu sig frábærlega í fjölbreyttum hlutverkum og erum við mjög stolt af þeim.
Eftir sýninguna var boðið upp á kaffiveitingar. Vel var mætt og var gaman hvað margir komu á hátíðina víðs vegar að.
Margar skemmtilegar myndir eru að finna hér á heimasíðunni undir myndir