Ævintýrin enn gerast - Árshátíð Þjórsárskóla
Föstudaginn 16. mars var árshátíð Þjórsárskóla. Dagurinn gekk vel og allir stóðu sig prýðilega. Um morguninn kom rúta með nemendum úr Flúðaskóla á loka æfinguna okkar. Um kvöldið var svo frumsýningin. Yngstu nemendur skólans í 1.-2. bekk léku leikrit um Búkollu, nemendur í 3.- 4. bekk léku söguna um Dansinn í Hruna. Nemendur í 5.-7.bekk léku leikritin: Allt var betra í gamla daga, Ýsa var það heillin, Gilitrutt, Gissur á Botnum, Sálin hans Jóns míns, Átján barna faðir í Álfheimum og Álagahvammurinn. Að auki tóku allir nemendur þátt í: söng á milli atriða, hönnun búninga, leikmunagerð, sviðsmynd og mála myndir úr sögunum sem prýddu salinn. Efnilegir krakkar hér á ferð.
Fullt af skemmtilegum myndum má sjá frá árshátíðinni undir flipanum „myndir“.