Skólavistun
Skólavistun og Frístund
Boðið er upp á skólavistun fyrir nemendur í 1.-4. bekk frá skólalokum fram að þeim tíma er
skólabílar leggja af stað. Skólavistun er í boði mánudaga til fimmtudaga.
Skólavistun er
gjaldfrjáls og fá nemendur léttan kaffitíma um kl. 14:10.
Boðið er upp á frjálsan leik og
ýmiskonar smiðjur ásamt íþróttum á vegum Ungmennafélags Gnúpverja. Skrá þarf
nemendur sérstaklega í íþróttir og greitt er fyrir það til ungmennafélagsins.
Umsjónarmaður skólavistar og frístundar er Eydís Birta Þrastardóttir. Hægt er að hafa
samband við hana í síma 697-8629 eða með tölvupósti á eydisb@thjorsarskoli.is
Foreldrar eru beðnir um að láta vita ef nemendur í skólavist og/eða frístund mæta ekki.
Að lokinni skólavistun og þegar skólabílar hafa lagt af stað er boðið upp á frístund til
klukkan 16:00 fyrir þá nemendur sem þurfa á því að halda.
Skólavist og frístund eru í boði þá daga sem kennsla er. Hvorugt er í boði á föstudögum en
þá líkur skóladeginum klukkan 12:30.
Gjaldskrá og skilmálar fyrir frístund eru hér að neðan.
Tímasetningar skólavistunar og frístundar eru sem hér segir:
Mánudagar Þriðjudaga Miðvikudaga Fimmtudaga
13:25 – 14:05 Skólavist Skólavist Kennsla Skólavist
14:05 – 14:45 Frístund Skólavist Skólavist Skólavist
14:45 – 16:00 Frístund Frístund Frístund Frístund
Reglur fyrir frístund Þjórsárskóla
Reglur fyrir frístund Þjórsárskóla
1. gr.
Foreldrar/forráðamenn, sem ætla að nýta þjónustu frístundar eftir að hefðbundinni kennslu og skólavist lýkur, þurfa að sækja um fyrir barn/ börn sín hjá skólastjóra Þjórsárskóla. Frístund er fyrir nemendur í 1.– 7. bekk Þjórsárskóla. Hægt er að skrá barn í 1- 4 daga í frístund á viku, frá mánudögum til fimmtudaga. Að lágmarki verða 3 börn að sækja þjónustuna svo henni sé haldið úti. Áður en dvöl barns í frístund hefst staðfesta foreldrar/forráðamenn með undirritun sinni, að þeir hafi kynnt sér gjaldskrá og reglur og skuldbinda sig til þess að hlíta þeim.
2. gr.
Ef barn ætlar að hætta í frístund skal berast tilkynning með mánaðar fyrirvara frá foreldri/ forráðamanni til skólastjóra skólans. Miðast uppsögnin við 1. eða 15. dag hvers mánaðar.
3. gr.
Í frístund gilda skólareglur Þjórsárskóla.
Frístund er opin sömu kennsludaga sem tilgreindir eru í skóladagatali Þjórsárskóla. Opnunartími er frá því að skólabílar fara frá skólanum á mánudegi – fimmtudags til kl. 16:00.
4. gr.
Gjald fyrir frístund er ákvarðað af sveitarstjórn í upphafi hvers almannaksárs og er gjald tekið fyrir þær klst sem börn eru skráð í frístund.
Gjaldskrá Þjórsárskóla má finna á heimasíðu Þjórsárskóla og heimasíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps, undir gjaldskrár.
Skeiða- og Gnúpverjahreppur sendir greiðsluseðil vegna þjónustugjalda mánaðarlega. Verði dráttur á greiðslum verða reiknaðir dráttarvextir, sbr. lög um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001.
5. gr.
Að jafnaði koma forföll ekki til frádráttar þjónustugjöldum nema um veruleg forföll sé að ræða og skal það metið í hverju tilfelli fyrir sig af skólastjóra.
Tilkynna þarf forföll til skólastjóra eða umsjónaraðila frístundar, sem heldur dagbók yfir þá sem nýta þjónustuna. Sími Þjórsárskóla er 486-6000.
6. gr.
Ef foreldrar/forráðamenn eiga tvö eða fleiri börn í fristund er veittur systkinaafsláttur 25% fyrir annað barn og 50% fyrir þriðja barn. Systkinaafsláttur gildir á milli leikskóla og frístundar.
Afsláttur reiknast á elsta barnið. Skilyrði afsláttar er að börn hafi sama lögheimili og fjölskyldunúmer í Þjóðskrá. Einungis er veittur afsláttur af vistundargjaldi en ekki fæðisgjaldi.
Einstæðum foreldrum er veittur er afsláttur af vistunargjaldi, 25%. Ekki er veittur afsláttur af fæði. Hefji einstætt foreldri sambúð skal það greiða hærra gjald frá þeim tíma sem sambúð hefst. Slíti foreldrar sambúð, skal leggja fram vottorð frá sýslumanni til að fá lækkun á gjaldi.
Ekki er hægt að fá bæði systkinaafslátt og afslátt sem einstætt foreldri.
Afsláttur er ekki veittur afturvirkt.
Samþykkt af sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps 4. febrúar 2026
