Vikan framundan
Nú styttist í jólafrí og nokkuð er um uppbrot í vikunni.
Þriðjudagur 15. desember – Jóla göngutúr frá 9.30. Mikilvægt að koma vel klædd, fyrir langa útiveru.
Miðvikudagur 16. desember – Jóla – Jóla stöðvar fyrir hádegi. Eldra og yngra stig vinnur að jólatengdum verkefnum á stöðvum. Kennsla samkvæmt stundaskrá eftir hádegi.
Fimmtudagur 17. desember – Jóla – Jóla stöðvar fyrir hádegi. Eldra og yngra stig vinnur að jólatengdum verkefnum á stöðvum. Í hádeginu er nemendum boðið upp á jólamat. Kennsla samkvæmt stundaskrá eftir hádegi.
Föstudagur 18. desember – Litlu – jóli, milli kl. 10-12. Stofujól og dansað kringum jólatré. Nemendur mega koma með „sparinesti“ og pakka í pakkaleik í stofunum.