Aðgengi utanaðkomandi aðila er takmarkað í skólanum. Foreldrar hafið samband símleiðis eða með tölvupósti ef þið eigið erindi í skólann.
Við höfum fengið þau tilmæli að halda skólastarfi eins óbreyttu og hægt er að svo stöddu.
Áhersla verður áfram á handþvott, sóttvarnir og þrif.
Morgunmatur verður áfram en með öðru sniði. Starfsfólk afgreiðir matinn á diskana hjá börnunum. Í boði verður: Hafragrautur, Kornflex, Þrjár gerðir af brauði (ekki ristað), fjórar gerðir af áleggi og ávextir.
Ef við erum með kvef eða flensueinkenni þá erum við heima.
Ef fjölskyldumeðlimur er í sóttkví/einangrun, vinsamlegast látið okkur vita og leitið ráða t.d. með því að hringja í 1700.