Sumarlestur

Í sumar var sjötta árið í röð sem verkefnið „Sumarlestur“ var í gangi í Þjórsárskóla en yfir 90% nemenda í skólanum tóku þátt, sem er frábært. Markmiðið með verkefninu er að auka lestraráhuga, hvetja nemendur til þess að vera duglega að lesa á sumrin og þar með viðhalda þeir frekar þeim framförum sem þau hafa náð yfir veturinn.  Að hausti er síðan veitt viðurkenning fyrir þátttöku í verkefninu og þetta árið fengu börnin verðlaunapening og Andrésblað. Kærar þakkir til þeirra sem lögðu okkur lið: Ísspor og Edda útgáfa.