Námsferð starfsfólks skólans
Starfsfólk Þjórsárskóla er að fara í námsferð til Noregs föstudaginn 14. okt. Við fengum styrk frá Erasmus til fararinnar. Tilgangur ferðarinnar er að skoða og fræðast um útiskóla og útikennslu. Við dveljum í Osló. Við munum heimskækja skóla þar sem heitir Markaskolen og vera þar úti í heilan dag. Svo förum við með lest til Hamars (u.þ.b. 1 og hálfs klst.) Þar munum við vera í náttúruskóla og gera verkefni. Vonandi verðum við fróðari eftir þessa ferð okkar.