Mötuneyti

Mötuneyti skólans fyrir hádegismat er rekið í Árnesi. Rekstraraðili er Þórður Ingvason sem eldar mat á staðnum. Starfsmaður mötuneytis sér um að skammta nemendum og hafa umsjón með nemendamatsal ásamt gæslufólki skólans. Matur er framreiddur kl. 11:45-12:35. Upplýsingar og matseðill hvers mánaðar er undir flipa á heimasíðu skólans.

Að morgni fá nemendur  hafragraut og ávexti í lok annarrar kennslustundar. Petrína Þórunn Jónsdóttir hefur umsjón með morgunmatnum.

Í  matsölum eru alltaf starfsmenn skólans í gæslu á meðan nemendur matast.

Áhersla í manneldisstefnu

Boðið verður upp á árstíðabundið grænmetistorg með öllum mat í Þjórsárskóla. Við erum vel í sveit sett og njótum uppskerunnar úr nágrannasveitinni Hrunamannahrepp. Þar er ,,mekka“ grænmetisframleiðslu landsins og frábært að geta notið hennar.

Áhersla er á ferskt hráefni í allan mat og bestu gæði í alla staði. Þannig verður hollustan í fyrirrúmi.

Á hverjum degi er í boði salatbar þar sem hægt er að fá ýmis grænmeti, ávexti, sósu  o.fl.